Leitaðu

Smelltu á flokk

Prenta þessa síðu

20. maí 2012
Volvo rútur | mið. 23. maí 2007

Yfir hundrað Volvo strætisvagnar pantaðir á einu bretti

Strætisvagnadeild Volvo hefur móttekið pöntun fyrir 113 nýja strætisvagna frá fyrirtækinu Veolia í Hollandi, sem sér um að koma vögnunum á göturnar þar. Þetta er stærsta einstaka pöntun á strætisvögnum Volvo sem borist hefur frá Hollandi.

Volvo 7700

Allir bílarnir eru af tegundinni Volvo 7700. Sjötíu og fimm þessara vagna eru tólf metra langir og hinir þrjátíu og átta eru átján metrar að lengd og liðstýrðir. Vagnarnir eru útbúnir hinni nýju 9 lítra vél Volvo með SCR tækninni, sem tryggir bæði lægri eldsneytisnotkun og minni útblástur. Verða vagnarnir notaðir í Brabant héraði í suðurhluta Hollands.

Góð reynsla ræður

Veolia velur Volvo enn og aftur vegna frábærrar reynslu í Hollandi, lágs viðhaldskostnaðar og þægilegra afhendingarmöguleika. Bílarnir verða framleiddir í verksmiðju Volvo í Póllandi og afhending fer fram á síðari hluta ársins.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli