Nú í síðustu viku lauk reynsluakstri á Volvo Hybrid 7700 Tvinn-strætisvagni og hélt vagninn að nýju til Danmerkur með Dettifossi hjá Eimskip.
Var Tvinn-vagninn prufaður á nokkrum leiðum hjá Strætó og notkunin skráð niður til að hafa samanburð við aðra vagna af sömu stærð hvað varðar hráolíueyðslu. Það er óhætt að segja að Tvinn-vagninn hafi komið starfsmönnum Strætó bs, þægilega á óvart því vagninn var mjög lipur í akstri og stóðust væntingar um hráolíueyðslu fyllilega. Niðurstöður sýna að Tvinn-vagninn var með þriðjungi minni hráolíueyðslu en sambærilegir strætisvagnar. Á mánuði eru þetta ansi margir lítrar, hvað þá á ársgrundvelli.
Eftir samtal við vagnstjóra sem keyrði vagninn þá var fólk sem notaði vagninn mjög ánægt með virkni Tvinn-vagnsins þar sem hann var hljóðlaus við stoppistöðvarnar. „Hann tekur af stað eins og lest án hávaða“ sagði Þórarinn Söbech vaktstjóri. Uppbygging þessa strætisvagns gerir það að verkum að þeir bílstjórar sem aka vagninum þurfa að hugsa og aka Tvinn-vagninum á umhverfisvænan hátt þ.e. taka rólega af stað, litlar inngjafir, hemla í tíma fyrir stoppistöðvar, allt til þess að nýta hreyfiorkuna sem best til að hlaða inn á rafhlöðurnar. Vagninn þarf að framleiða nóg af rafmagni til þess að eiga nóg af því þegar þess er þörf. Samnýting afls dísilvélarinnar og rafmótorsins er stjórnað af tölvu og samnýtist ef þess er þörf. I-Shift gírkassinn spilar stórt hlutverk í samvirkni vélbúnaðarins. Vélin í Tvinn-vagninum er Volvo D5E sem er 5 lítra, 4 strokka og er 210 hö, með 800 Nm tog. Rafmótorinn er 160 hö með 800 Nm tog, því til samans 370 hö/1600 Nm tog.
Uppbygging driflínu er eftirfarandi, Díesel D5E mótor – kúpling – rafmótor – I-shift gírkassi. Þegar ýtt er á bremsur þá nýtir tvinn-vagninn hreyfiorkuna til að framleiða raforku inn á rafhlöðurnar.
Viljum við hjá Brimborg þakka Strætó bs og Volvo Bus Danmark, fyrir samstarfið við þennan reynsluakstur á Volvo Hybrid 7700 strætisvagninum. Nú liggja fyrir upplýsingar eftir reynsluakstur Volvo Hybrid 7700 Tvinn-vagnsins sem hjálpar forráðarmönnum Strætó bs, að vega og meta frekar kosti og galla ólíkra leiða er snýr að orkugjöfum strætisvagna sem standa til boða.