23. febrúar 2012
Volvo rútur
|
mið. 2. mar. 2011
Fjórir notaðir Volvo strætisvagnar til þjónustu hjá Strætó bs.
Hér sést strætisvagn af sömu gerð og væntanlegir eru, en tveir slíkir komu til landsins síðastliðið haust
Nýju Volvo strætisvagnarnir fjórir sem bætast við flota Strætó bs. á næstu dögum, eru af gerðinni Volvo BLE 6x2. Vagnarnir eru nokkuð stærri en algengustu vagnarnir á höfuðborgarsvæðinu þar sem þeir eru á þremur öxlum og því 13,7 metrar að lengd. Þeir taka fleiri farþega en hefðbundnir 12 metra strætisvagnar og henta því vel á fjölsóttustu leiðunum.
Vagnarnir eru nú þegar reynslumiklir en þeir hafa þjónað íbúum Óðinsvéa í Danmörku hingað til. Vagnarnir eru þó í fullkomnu lagi og líta mjög vel út og eru nánast eins og nýir, enda koma þeir nýmálaðir til landsins. Eftir komuna til landsins verða vagnarnir uppfærðir samkvæmt viðmiðum Strætó um búnað strætisvagna fyrirtæksins og mun þeir fara ferskir á göturnar eftir þá uppfærslu.
Í Óðinsvéum hafa Volvo strætisvagnar verið notaðir um langt skeið og er fjölbreyttur floti vagna þar í notkun. Stutt er síðan bæjarfélagið tók á móti tvíorkustrætisvagni frá Volvo en með tvíorkutækninni má draga úr eldsneytisnotkun og útblæstri um 30-35%.
Við hjá Brimborg óskum Strætó hjartanlega til hamingju með kaupin á þessum glæsilegu Volvo strætisvögnum.