23. febrúar 2012
Volvo rútur
|
mán. 27. sep. 2010
Strætó bs fær tvo glæsilega notaða Volvo strætisvagna frá Danmörku
Volvo hefur þjónað borgarbúum vel
Nýju notuðu Volvo vagnarnir eru 13,7 metra langir og í afar góðu ásigkomulagi eftir þjónustu við íbúa Óðinsvéa. Strætisvagnarnir voru málaðir að nýju áður en þeir komu til landsins og eru því afar glæsilegir.
Vagnarnir uppfylla hluta af endurnýjunarþörf Strætó og eru þeir góð viðbót við eldri og reyndari Volvo strætisvagna sem Strætó á fyrir.
Sumir þeirra eru komnir vel til ára sinna og til að gefa hugmynd um hversu vel þeir hafi þjónað borgarbúum, þá er búið að aka þeim rúmlega 1,5 milljón kílómetra, sem er um það bil tvær ferðir fram og til baka til tunglsins!
Brimborg óskar Strætó til hamingju með nýju Volvo vagnana og við erum sannfærð um að þeir eigi eftir að þjóna fyrirtækinu og farþegum vel á komandi misserum.