Leitaðu

-->
Smelltu á flokk

Prenta þessa síðu

23. febrúar 2012
Volvo rútur | mið. 9. jún. 2010

Fortíð, nútíð og framtíð almenningssamgangna rædd í Reykjavík

Brimborg óskar Strætó bs góðs gengis með viðamikla ráðstefnu

Strætó bs heldur tvöfalda ráðstefnu á næstu dögum, nánar tiltekið dagana 9.-11. júní. Þar eru á ferð annars vegar NLT (Nordisk lokaltrafik) ráðstefnan, sem haldin er á tveggja ára fresti, og hins vegar InformNorden ráðstefnan sem haldin er árlega.

Þar sem komið var að Strætó bs að halda þær báðar var ákveðið að slá þeim saman í eina allsherjar almenningssamgönguráðstefnu á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu á Suðurlandsbraut.

Báðar þessar ráðstefnur eru hugsaðar fyrir þá sem hafa með fólksflutninga að gera á norðurlöndunum, bæði eigendur og stjórnendur þessara fyrirtækja, auk ráðamanna og ökumanna strætisvagna. Búist er við að allt að 300 manns sæki ráðstefnuna.

Yfirskrift NLT ráðstefnunnar er „Þá! Núna! Hvað er næst!“ og vísar til þess að þar verður rætt um fortíð, nútíð og framtíð í faginu. Yfirskrift InformNorden er Tæknin virkar! Kominn tími til að hefjast handa!

Þátttakendur eiga von á skemmtilegri dagskrá með mörgun áhugaverðum fyrirlestrum. Meðal fundarefna á NLT ráðstefnunni eru samskipti stjórnenda og ökumanna, öryggismál, markaðsmál og umhverfismál.

Á ráðstefnu InformNorden er meira fjallað um tæknilegu hliðina á rekstri strætisvagna; meðal annars smart kort og miðasölu, nýtingu á upplýsingum til þekkingar, leiðarskipulag, umferðarupplýsingar og margt fleira.

Frekari upplýsingar er að finna á www.informnorden.org

Við hjá Brimborg óskum Strætó bs góðs gengis með þessa veglegu ráðstefnu.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli